top of page
ChatGPT Image Aug 30, 2026, 12_51_24 PM_edited.jpg

Þjálfarinn á bak við Hólm Næring

Hæ, ég er Ástrós H. Hilmarsdóttir Hólm — næringar- og einkaþjálfari.

​

Í yfir tíu ár hef ég hjálpað alls konar fólki, á ólíkum stöðum í lífinu, að byggja upp styrk, bæta næringuna og ná meiri stjórn á eigin heilsu. Ég hef sjálf rekist á ýmsa veggi þegar kemur að heilsu og sambandi mínu við mat. Sú reynsla hefur mótað hvernig ég þjálfa og hvernig ég mæti fólki.

​

Ég trúi ekki á staðlaðar lausnir, öfgar eða að árangur snúist aðeins um töluna á vigtinni. Ég vil kenna þér að lyfta rétt, næra líkamann og sjá hversu miklu meira hann getur.

​

Dóttir mín hefur aldrei talað um hvað mamma hennar sé mjó. En hún hefur oft talað um hvað mamma hennar sé sterk. Það skiptir mig máli.

​

Ég er meðal annars ISSA Master Trainer og hef sérhæft mig í styrktarþjálfun, næringu, líkamsímynd og sambandi fólks við mat. Hjá mér færð þú ekki bara plan. Þú færð þekkingu, reynslu, leiðsögn og stuðning sem hjálpar þér að verða öruggari og sterkari — bæði innan og utan ræktarinnar.

​

Saman erum við sterkari.

bottom of page