Byggjum eitthvað sem endist
Í yfir tíu ár hef ég hjálpað fólki að verða sterkara, bæta næringuna og byggja upp betra samband við mat og líkama. Sú reynsla hefur kennt mér að engin ein leið hentar öllum — og að árangur sem endist byggist ekki á fullkomnun eða skyndilausnum.
Saman finnum við leið sem passar inn í þitt líf. Þú færð leiðsögn, verkfæri og stuðning sem nýtist þér langt út fyrir þann tíma sem við vinnum saman.

Þjónusta
Næringar & fjarþjálfun
Næringar og styrktarþjálfun sem vinna saman að þínum markmiðum. Þú færð skýra stefnu, plan sem passar inn í þitt líf og eftirfylgni alla leið.
- Innifalið:
• Upphafsviðtal
• Næringarþjálfun sniðin að þínum þörfum og markmiðum
• Einstaklingsmiðað æfingaprógram
• Vikulegt check-in
• Regluleg samskipti og stuðningur
• Yfirferð á æfingamyndböndum
• Aðstoð við tækni og framkvæmd æfinga
Verð: 38.500 kr.
Fjarþjálfun
Markviss þjálfun — hvar sem þú ert. Þú færð æfingaprógram sem byggir á þinni getu, aðstöðu og markmiðum ásamt reglulegri eftirfylgni.
- Innifalið:
• Upphafsviðtal í síma
• Einstaklingsmiðað æfingaprógram
• Tvö check-in á mánuði
• Ótakmörkuð samskipti og stuðningur
• Yfirferð á æfingamyndböndum
• Aðstoð við tækni og framkvæmd æfinga
Verð: 16.500 kr.
Einkaþjálfun
Hér ertu ekki bara að mæta í ræktina, hér lærir þú að lyfta. Í einkaþjálfun lærir þú rétta tækni, byggir upp öryggi og færð meira út úr hverri æfingu. Ég hjálpa þér að gera meira en þú myndir gera ein/n og tryggi að þú haldir áfram að þróast.
- Innifalið:
• Þú færð æfingaprógram til að fylgja á milli tíma, svo hver æfing færi þig nær markmiðinu.
Verð fer eftir fjölda tíma á mánuði.

Hér færð þú rýmið.
Í Reykjavík þjálfa ég í lokaðri einkaaðstöðu í Osteósetrinu, Kirkjustétt 4 í Grafarholti. Rýmið er eingöngu fyrir þig eða hópinn þinn — engin bið, engin truflun og engin önnur þjálfun í gangi.
Byggðu líkama sem getur meira — ekki bara líkama sem vegur minna.
Ekki bíða eftir rétta augnablikinu. Það kemur líklega aldrei. Þú átt ekki eftir að finna bestu útgáfuna af sjálfri þér fyrir tilviljun — þú byggir hana. Eina æfingu, eina ákvörðun og eina venju í einu.
Viltu vita meira um þjálfunina og hvort hún henti þér? Hafðu samband og við förum yfir þetta í símtali.
